Ásamt hefðbundnum veislum þarf Francois Fons ekki að sanna að hann getur sífellt komið á óvart. Af hverju ekki að vera með öðruvísi veislu. Það nýjasta á matseðlinum er Paella Valencia sem er kærkomin tilbreyting í veisluflóruna.
Þetta er spennandi réttur sem er upphaflega frá Valencia á Spáni og var áður fyrr notaður sem fjölskyldumatur. Fram á daginn í dag er Paella veitt sem veislumatur fyrir fáa sem marga t.d. brúðkaup, ættarmót, þemakvöld, saumaklúbba, sumarbústaði og öll önnur tækifæri, jafnt úti sem inni.
Paella er löguð í sérhönnuðum pönnum sem eingöngu eru ætlaðar fyrir hana. Hægt er að veita fyrir smáar veislur sem stórar, allt að 1000 manns. Innihald í Paellu Francois er svínakjöt, kjúklingar, humar, skötuselur, smokkfiskur, rækjur og tai-rækjur, hörpuskel, 3 tegundir af bláskel, grænmeti og fleira, saffran og allt steikt og soðið í humarsoði, skreytt að listrænum hætti Francois.
Paella er framreidd með baguette brauði og fersku grænmetissalati.