François Louis Fons (fæddur 1947) er mjög reyndur og skapandi matreiðslumeistari. Hann ólst upp í Suður-Frakklandi við Miðjarðarhafið í umhverfi þar sem lífið snýst um mat. Ungur lærisveinn á veitingahúsum í Suður-Frakklandi, lærði hann aga eldhússins og lögmál matargerðarlistar A. Escoffier.
François fluttist til Íslands árið 1973 og hóf störf á Hótel Sögu, tveimur árum síðar varð hann yfirmatreiðslumaður á Grillinu.
Núna býðst þér að nýta reynslu, frumleika og sköpun þessa hugmyndaríka matreiðslumeistara til að halda eftirminnilegar veislur.
1964-1968 Hótel Delseny, Hótel font, Thues-les-bains, Chateau de Villefalse, lærisveinn Alain Amillat.
1970 Aðstoðarmatreiðslumaður og síðan yfirmatreiðslumeistari í frönskum veitingahúsum.
1970-1973 Matreiðslumaður á Savoy hótelinu í London, matreiðslumaður hjá hertoganum af Bedford í Woburn Abbey castle. Yfirmatreiðslumaður á eftirtöldum stöðum í London; Le Bressan, Chez Noel, Le Coq au vin, La Recolte og á Truffes.
1973-1984 Yfirmatreiðslumaður í Grillinu, hótel Sögu og meðeigandi í Gildi ehf.
1978-1984 Rak eigin sumarveitingarstað Aux Fruits de Mer (sjávarréttastað) í Argéles - Plage í Suður-Frakklandi.
1981 Heiðurspeningur forseta Íslands.
1985-1987 Yfirmatreiðslumeistari á veitingahúsinu Rósenberg í Kvosinni.
1988-1992 Yfirmatreiðslumeistari á Strompinum og veislustjóri Franska sendiráðsins.
1993-1997 Yfirmatreiðslumeistari hjá NLFÍ, Hveragerði.
1997-2002 Veislusmiðjan.
- Meðlimur í Commanderie des Cordons Bleus de France.
- Meðlimur í l'Ordre Mondial des Gourmets degustateurs.
- Meðlimur í Klúbbi Matreiðslumanna.
- Meðlimur í Klúbbi matreiðslumanna á Norðulöndum.
- Meðlimur í World Association of Chefs.
- Maitre Rotisseur í la Chaine des Rotisseurs.
- Í íslenska landsliðinu sem hlaut bronsverðlaun í heitum réttum í Olympíukeppni matreiðslumanna 1992.
François Louis Fons hefur einnig matreitt ofan í marga þekkta einstaklinga s.s. Francois Mitterand forseta Frakklands, Jóhannes Pál páfa, Margréti Þórhildi Danadrottningu, George Bush þá varaforseta Bandaríkjanna, Helmut Schmit kanslara Þýskalands, Kekkonen forseta Finnlands, Vigdísi Finnbogadóttir forseta Íslands o.fl.